Lög Siglingafélagsins Hafliða

Nafn og starfsemi.

  1. Félagið heitir Siglingafélagið Hafliði. Kt. 560421-1920
  2. Heimili og varnarþing er í Hafnarfirði.
  3. Siglingafélagið Hafliði er aðili að Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar (ÍBH) og starfar samkvæmt lögum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og samkvæmt gildandi íþróttalögum hverju sinni.
  4. Meginmarkmið félagsins eru iðkun siglinga og efla siglingar sem keppnisíþrótt.

Skipulag félagsins.

  1. Málefnum félagsins stjórna:
    a) Aðalfundur
    b) Stjórn
  2. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

Aðalfundur.

  1. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félags.
  2. Allir félagar hafa rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétt.
  3. Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. febrúar ár hvert og skal hann boðaður bréflega eða með tölvupósti og með auglýsingu á heimasíðu félagsins með minnst 14 daga fyrirvara.
  4. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum, skulu tilkynnt stjórn  minnst 5 dögum fyrir aðalfund.
  5. Stjórn skal tilkynna dagskrá fundarins á heimasíðu félagsins minnst 2 dögum fyrir aðalfund og birta þær tillögur sem berast.
  6. Hver félagi hefur aðeins 1 atkvæði.
  7. Fundurinn er lögmætur ef löglega hefur verið til hans boðað.
  8. Á fundinum hafa aðeins lögráða félagar og skuldlausir við félagið um síðustu áramót atkvæðisrétt. Gestir, sem stjórn hefur boðið, hafa rétt til fundarsetu og tillögurétt.
  9. Aðeins lögráða félagar eru kjörgengir í stjórn félagsins.

Aukaaðalfundur

  1. Aukaaðalfund má halda, ef stjórn telur ástæðu til eða 25% hluti félaga óskar þess.
  2. Alla boðunar- og tilkynningarfresti til aukaaðalfundar má hafa helmingi styttri en til aðalfundar.
  3. Á aukaaðalfundi má ekki gera lagabreytingar heldur aðeins kjósa bráðabirgðastjórn, sem starfar fram að næsta aðalfundi.
  4. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðalfund.

Dagskrá Aðalfundar.

  1. Setning.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
  4. Gjaldkeri leggur fram skoðaða reikninga.
  5. Nefndir gefa skýrslu(r) (ef við á).
  6. Umræða um skýrslu(r).  Afgreiðsla reikninga.
  7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
  8. Lagðar fram tillögur að lagabreytingum.
  9. Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar.
  10. Nefndaálit og atkvæðagreiðslur um tillögur.
  11. Kosning formanns og stjórnar og tveggja varamanna.
  12. Kosið í nefndir.
  13. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  14. Ákvörðun árgjalds.
  15. Önnur mál.
  16. Fundarslit.

Önnur ákvæði um aðalfund.

  1. Kosningar með handauppréttingu en leynilegar ef atkvæðisbær félagi óskar þess.
  2. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum kosninga, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf  2/3 hluta greiddra atkvæða.
  3. Fundur getur með 2/3 atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram eftir að dagskrá fundarins var send út.
  4. Kaup og sala á fasteignum og skráðum skipum þarf að taka fyrir á aðalfundi og þarf samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra.

Stjórn félags

  1. Stjórn félags skipa 5 félagar: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
  2. Á aðalfundi er formaður kosinn fyrst en síðan listakosning. Stjórn skipar með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund.

Starfssvið stjórnar félags

  1. Að framkvæma ályktanir fundar, og daglega stjórnun milli aðalfunda.
  2. Formaður boðar fundi og stjórnar þeim.
  3. Stjórnarfundi skal að jafnaði halda einu sinni í mánuði.
  4. Aukafundi skal kalla saman ef 2 stjórnarmenn óska þess.

Leggja félag niður

  1. Tillögur um að leggja félag niður má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi og koma þarf fram í fundarboði að fjalla eigi um slit á félaginu.
  2. Til samþykktar þarf minnst 2/3 hluta atkvæða atkvæðisbærra.
  3. Falli starfsemi félagsins niður, skulu allar eignir þess varðveitast hjá ÍBH í 5 ár og renna síðan til ÍBH hafi ekki fengist nýir aðilar til að endurvekja starfið.

Lagasetning/lagabreyting

  1. Lögum verður ekki breytt nema á aðalfundi og þá með 2/3 hlutum atkvæða atkvæðisbærra.
  2. Tillögur að lagabreytingum skulu sendar með fundarboði.
  3. Lög þessi eru samþykkt á aðalfundi Siglingafélagsins Hafliða þann 6. febrúar 2025 og öðlast gildi þegar framkvæmdastjórn ÍSÍ og stjórn ÍBH hafa staðfest þau.