Miðsumarmót Brokeyjar

Miðsumarmót Brokeyjar

gudrunbjork

Laugardaginn 12. júni var siglt um sundin blá á Miðsumarmóti Brokeyjar í tilefni af 50 ára afmæli siglingafélagsins.

Áhöfn Hafliða barst óvæntur liðsauki þegar skipverji af franska skipinu Coyote fékk að fljóta með.

Áhöfn Hafliða sigldi Ísmolanum til sigurs og óskum við þeim kærlega til hamingju. Jafnframt vill Siglingafélagið Hafliði óska Brokey hjartanlega til hamingju með afmælið.

Í áhöfn Ísmolans kepptu: Gunnar Geir Halldórsson skipstjóri, Unnar Már Magnússon, Elma Karen Gunnarsdóttir, Guðrún Björk Friðriksdóttir og franski skipverjinn Jean 🙂